Blog

Blog

Áróðri dreift af Ríkisútvarpinu
Í síðustu viku uppgötvuðust veggspjöld sem höfðu poppað upp víðsvegar á háskólasvæðinu í Reykjavík og nokkrum bókasöfnum á höfuðborgarsvæðinu. Um var að ræða veggspjald sem útskýrir trans regnhlífina; skaðsemi og hættur sem leynast undir henni. Sá sem þetta ritar skorast ekkert undan því að hafa staðfært og þýtt það. Ég tel það vera borgaralega skyldu mína að miðla mikilvægum upplýsingum til fólks, sérstaklega þegar jafn umdeildur málaflokkur er annars vegar og þegar fjölmiðlaumfjöllunin og fræðsluefni í skólum er eins einhliða og raun ber vitni. Veggspjöldin mín vöktu athygli, því Ríkisútvarpið birti frétt um málið á vef sínum síðla kvölds mánudaginn 13. október og uppfærði fréttina svo árla morguns daginn eftir. Ingunn Lára Kristjánsdóttir er höfundur fréttarinnar, sem er í raun ekki nein frétt, heldur skoðanapistill starfsmanns RÚV. Í upphafi greinarinnar skrifar hún að í veggspjöldunum er að finna texta sem „elur á ótta gegn transfólki“. Auk þess talar hún um innihald veggspjaldsin
20 October 2025
Hinsegináætlun stjórnvalda – pólitísk hugmyndafræði í stað staðreynda
Ný drög að aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks 2026–2029 liggja nú fyrir og eru í samráðsgátt stjórnvalda. Þar er sett fram heildarstefna stjórnvalda í þessum málaflokki fyrir næstu fjögur ár. En þegar maður rýnir gaumgæfilega yfir plaggið blasir við að þetta er ekki hlutlaus mannréttindastefna, heldur mjög einsleit pólitísk hugmyndafræði. Hérna er ríkisbáknið að spila sitt hlutverk til þess að þenja út frekar annað bákn sem þrífst innan stjórnsýslunnar. Ég hvet flesta til þess að kynna sér þessa aðgerðaráætlun og jafnvel skila inn umsögn. Kenningar sem staðreyndir Áætlunin gengur út frá því sem gefnu að svonefnd hinseginfræði séu byggð á óumdeildum og sannreyndum vísindum. Þær eru þó ekki annað en tiltölulega nýjar og umdeildar fræðikenningar, einkum innan hug- og félagsvísinda. Þar er kyn og kyngervi talið félagslegt fyrirbæri en ekki líffræðilegt. Þetta er ekki samþykkt niðurstaða í vísindum, heldur umdeild hugmynd. Hættuleg þróun í tjáningarfrelsi Mikil áhersla er lögð á að ber
18 September 2025
This blog isn’t available right now. Try refreshing the page or check back later. Sorry for the inconvenience